top of page

Ræktum náttúrubörn!

Sólrún Harðardóttir námsefnishöfundur


Náttúrulegt umhverfi getur verið fólki innblástur til sköpunar en jafnframt uppspretta vellíðunar. Útivist og vettvangsferðum fylgja oft dýrmætar upplifanir sem skipta miklu máli við að þroska hjá börnum og fólki almennt auðmýkt og virðingu fyrir náttúrunni. 


Heimkynni, einkum æskustöðvar, eru mikilvægur þáttur í sjálfsmynd einstaklinga. Að þekkja sína heimahaga gerir okkur sterkari og tilbúnari til að skilja og upplifa umhverfið annars staðar.


Hæfileikann til að njóta náttúru þarf að rækta og hlúa að. 


Nýlega var opnaður umfangsmikill fræðsluvefur um náttúru Reykjavíkur þar sem markmiðið er meðal annars að rækta þennan hæfileika, kynna tungumál náttúrunnar, fá fólk til að vera úti og pæla í því sem fyrir augu ber - læra. Á vefnum er fjallað um ýmislegt út frá jarðfræði, líffræði og landafræði. Sagt er frá landslagi, þróun byggðar, ólíkum búsvæðum, náttúruvernd og áhugaverðum stöðum í landi Reykjavíkur. Á vefnum eru einnig fjölbreytt verkefni. 


Allir geta sótt sér fróðleik á vefinn en hann er þó sérstaklega ætlaður börnum og er hugsaður þannig að þau vinni með hann í samstarfi við fullorðna, hvort sem það eru kennarar, leiðbeinendur í frístundastarfi, foreldrar eða aðrir ættingjar og vinir. Reglulega birtast fréttir á vefnum. „Þetta er hlaðborð af góðgæti!“, var sagt um vefinn. 


Náttúra Reykjavíkur er mjög merkileg. Fáar borgir heimsins geta státað af öðru eins: villtum fuglum á tjörn, jökulsorfnum klöppum, laxveiðiám, ósnortnum fjörum, eyjum á sundum, lundum, gervigígum, steingervingum í setlögum, hrauni og jarðhita svo eitthvað sé nefnt. Þetta auðgar líf okkar. Við verðum að standa vörð um náttúru Reykjavíkur. Það er sérstaklega brýnt í ört vaxandi borg þar sem ríkir framkvæmdagleði. 


Lykillinn að náttúruvernd felst í að við ræktum upp sem flesta einstaklinga sem hafa skilning og áhuga á náttúrunni. Félagar í Landvernd eru væntanlega sammála því enda endurspeglast þessi hugsun í markmiðum og starfi félagsins. Vefur um náttúru Reykjavíkur snýst sömuleiðis um þessa hugsjón. Lesum vefinn, notum hann og segjum frá honum: natturareykjavikur.is 


Höfundur og útgefandi vefsins er Sólrún Harðardóttir náttúrufræðikennari og námsefnishöfundur.

 
 
Snowy Forest

Stefnt er að því að Þoka verði gefin út fyrsta fimmtudag í mánuði.


Þoka er sjálfstætt verkefni Þorgerðar Maríu
Þorbjarnardóttur og Fífu Jónsdóttur.


Ritstjórn: Þorgerður María
Hönnun og uppsetning: Fífa Jónsdóttir
Greinarnar sem birtast eru á ábyrgð höfunda.


Þoka er blað þar sem fólk getur sent inn skoðun um umhverfismál. Óski einhver þess að skrifa í bréfið getur sá hinn sami sent póst þess efnis á
greinar@thoka-blad.is

Við tökum við frjálsum framlögum!

Ef þig langar að styrkja prentið þá getur þú lagt inn á reikning Þorgerðar Maríu með skýringunni: Þoka

kt. 2704952659

Rnr. 0305-26-012704

Styrkir verða notaðir í að prenta meira og dreifa víðar

bottom of page